 |
Tuesday, November 15, 2005
Norðmenn eru nú bara alveg óvitlausir. Þeir gerðu víst einhverja rannsókn í sambandi við gáfur og komust að niðurstöðu sem ég lengi hef þekkt.
En allavega, þeir komust að því að börn fædd í janúar, FEBRÚAR og mars eru gáfaðari en önnur börn!!! Og munurinn var víst talsverður!
Ég held það þurfi ekkert að ræða þetta frekar, þetta er staðreynd!!!
Over and out!!!
Posted at 21:53 by maggi
Thursday, November 10, 2005
Jú jú, eins og fyrirsögnin segir: Vinna, vinna!! klukkan að verða 22 og ég ákvað at rita örfá orð áður en ég fer heim úr vinnunni........
Sennilega verður einhver álíka dagur á morgun........svo helgin fer víst í afslöppun og að reyna að ná því sem maður ekki nær alla hina dagana.......
En fyrst hún litla systir las síðast verð ég að reyna að halda eitthvað áfram að skrifa á næstunni! Líka til að halda íslenskunni við því maður er orðinn algjör "sprogspasser".
Dæmigerð mistök hjá mér eru: Öfug orðaröð
Tekur tíma að finna rétt orð
Byrja að tala dönsku við íslendinga og tek ekkert eftir því sjálfur fyrr en viðkomandi horfir undarlega á mig og skilur ekki neitt.
Og síðast en ekki síst er ég miklu betri til að koma með "Punch-line" á dönsku en íslensku!
Það er bara eitt sem ekki klikkar! Maður getur enn sungið með flestöllum gömlu sálarlögunum!! :)
Posted at 21:56 by maggi
Wednesday, November 09, 2005
Jú jú, haldiði að sé, maður ákvað svona eitt augnablik að vakna úr dvala og skrifa nokkrar línur bara að gamni. Ekki að nokkur maður lesi þetta lengur en.......who cares!
Hvað hefur gerst síðan ég skrifaði síðast, fyrir hvað 2-3 mánuðum?? Ekki mikið svo sem.....ekkert getað tekið mér frí undanfarið, er kominn í nýja stöðu í vinnunni (logistics manager) sem þýðir að maður kemur stundum seint heim úr vinnu, þannig að ég gef mér lítinn tíma í eldamennsku, já og svo nær maður eingöngu að þvo um helgar. En það er aukaatriði þegar maður hefur skemmtilegt "job"
Svo var maður að sjálfsögðu á Sálarballi í Köben á laugardaginn og það er víst engin lygi þegar ég segi að þetta hafi án efa verið eitt það allra besta sálarball sem ég hef verið á. Og þau eru víst orðin nokkur talsins. Á sama tíma gafst jú líka tækifæri til að kaupa nýja diskinn sem er alveg hreint prýðilegur. Gaman að nefna að diskurinn kostaði 150 DKK sem er ca. 1500 krónur íslenskar. Skemmtilegt það þar sem diskurinn kostar 2000 kall á skerinu.
Sem sagt, alveg hreint prýðileg helgi að baki!!!! :)
Ég lofa engu en kannski ég skrifi aðeins meira núna á næstunni en undanfarna mánuði.....over and out....
Posted at 12:43 by maggi
Tuesday, May 31, 2005
Jæja góðir hálsar! Las grein á mbl.is áðan þar sem stendur að skírnir barna inn í dönsku þjóðkirkjuna fari hríðfallandi. Eingöngu 75% barna voru skírð inn í dönsku þjóðkirkjuna á árinu 2004. Árið 1996 var hlutfallið 80%. Svo stendur að sérfræðingar hafi enga skíringu á þessu en hins vegar hafi kirkjusókn einnig farið minnkandi á þessum árum. (Kannski það sé ein skýringin).
En ég verð jú stundum að tjá mig um hin ýmsu málefni sem ég veit mismikið um og ég mun halda því áfram. Ég vil taka það fram að ég hef ekki gert neinar kannanir á þessu sviði né heldur leitað upplýsingar og ég hef því engar haldbærar skýringar heldur eingöngu mína skoðun og mínar hugmyndir.
Mér bara allt í einu datt í hug, hvað telja margir Danir vera eitt af stærri vandamálum þjóðarinnar?? Jú jú, fjölgun útlendinga í landinu............og þá hugsar Maggi.......en heyrðu mig nú, eru ekki flestir þessara útlendinga frá arabalöndunum........jú einmitt. Ég ætla ekki taka til umræðu hér hvort þetta er vandamál eða ekki, því þetta er yfirleitt ágætis fólk, nema hvað það gengur erfiðlega að fá þetta fólk í vinnu, bæði vegna þess að það á oft erfitt með að aðlagast danskri menningu og tungu....(stundum er viljinn heldur ekki fyrir hendi). Því er þróunin þessi, fleiri útlendingar sem oftar en ekki eru annarar trúar en kristinnar trúar. Þeir aðlagast ekki menningunni og eru því oft bara heima hjá sér........hvað er þá annað að gera en..........og svo er það oft hlutverk kvennanna bara að sjá um uppeldi barnanna og ekki annað.
Á sama tíma er þróunin hjá innfæddum dönum að eignast börn síðar og síðar á ævinni, og þar sem þessi þróun er nýlega hafin má ætla að útlendingar eignist hlutfallslega fleiri börn og einnig fyrr á ævinni. Á sama tíma og útlendingunum fjölgar þá get ég ekki annað en lagt saman 1 og 1 og fæ 14. Semsagt afleiðingin er að hlutfallsega færri börn eru skírð í dönsku þjóðkirkuna........Ef þú ert sammála láttu þá í þér heyra, ef þú ert ósammála þá geturðu hoppað uppí.........loft af einstakri gleði eða reiði og látið þína skoðun í ljós!
Posted at 21:22 by maggi
Wednesday, May 25, 2005
Only in Denmark...........
Þetta gerist nú eingöngu í Danmörku:
Hjá Harboe brugghúsinu hér í DK fóru starfsmenn í 2ja daga verkfall eftir að stjórn fyrirtækisins setti harða stefnu í áfengismálum og tilkynnti að aðeins mætti drekka 6 bjóra á dag í vinnunni og bara í mötuneytinu. 6 bjóra reglan hefur verið í gildi í nokkur ár, en einnig hefur mátt drekka við vinnuna, hvort sem maður vinnur við vélarnar á gólfinu, við pökkun, jú eða kannski maður aki lyftara.......
Hér á árum áður mátti neyta bjórs í ótakmörkuðu magni og það kostaði langt verkfall þegar því var breytt.
Þess má geta að sérfræðingar hafa varað við þessari breytingu þar sem þetta geti kostað minni afkastagetu og sjúkleika hjá starfsfólki!! Ástæðan: Jú jú, ef bjórs er eingöngu notið í mötuneyti í pásunum þá vill prómillumarkið lækka þegar fólk ekki er í pásu og starfsmenn gætu því fengið timburmenn og fráhvarfseinkenni og færi frekar að drekka í laumi og það gæti ollið slysum.........nei því það veldur engum slysum þegar lyftarafólkið veltur útúr lyftaranum vegna drykkju........
Þetta hljómar kannski ótrúlega, en engu að síður er þetta eins satt eins og ég er rauðhærður!!
Posted at 22:11 by maggi
Wednesday, April 27, 2005
It´s just 1 of those days when u don´t wanna wake up, everything is fucked, everybody sucks..............................the best way is 2 stay away mother f***er, it´s just 1 of those days!!!
Posted at 19:36 by maggi
Friday, March 18, 2005
En nóg annað að gera, sportið alveg að taka yfir, út að hlaupa 8 km. í gær! Ekki annað að gera fyrst veðrið var svona ágætt, engin smá hitabreytin, beint frá -5 gráður og svo núna að nálgast +10. Og smá rigning reyndar svo snjórinn hvarf 1,2 og 3.....og vatn að flæða inn í hús í hinum ýmsustu landshlutum.
Og aftur að sportinu, því svo spilaði ég badminton í tæpa 2 tíma í dag og svo er æfingaleikur í boltanum á morgun og aftur á sunnudag....PUHA erfið helgi framundan.
Skrifa kannski betur um Val Thorens síðar....ef ég nenni.....en læt duga núna að það snjóaði fyrstu 3 dagana, og það slatta!! (það var líka kalt, allt að 20 gráðu frost) En hvað um það, snjókoman gerði það að verkum að þeir höfðu ekki undan við að troða brekkurnar og því gat maður skíðað í djúpum snjó og leikið smá "Off-piste".
En eftir snjó fyrstu 3 dagana var sól og blíða hina 5 dagana.......sem kostaði smá sólbruna og ég líkist enn pandabirni í framan......í vinnunni þessa viku hef ég verið kallaður ýmsum nöfnum...redskin o.s.frv...... Öfundsýki í þessu fólki! :)

Ég er svo flottur!! Ekki spurning!! Kannski fleiri myndir síðar.
Posted at 20:37 by maggi
Sunday, March 13, 2005
Jæja,þá er maður kominn heim aftur eftir frábæra viku í Val Thorens, í Frakklandi! Meiriháttar vika á skíðum alla daga, snilldar veður, snilldar færi, eintóm hamingja, ég skrifa kannski betur um það síðar! En bless í bili, ætla að leggjast fyrir framan imbann og slaka á, því að þó að heimferðin hafi gengið ágætlega er maður samt létt þreyttur!!
Ciao!!
Posted at 20:44 by maggi
Thursday, March 03, 2005
Ég kveð í bili!!
Legg í hann í fyrramálið, til Val Thorens!!! Heil vika á skíðum í frönsku ölpunum!! Það fer reyndar ekki mikið fyrir frönskukunnáttu minni, en kannski kann ég eina eða tvær setningar........best að vera ekkert að nota þær hérna, sjáum bara hvernig viðbrögðin verða hjá frönsku stúlkunum!! :)
Annars er hellings snjór hérna í DK, vantar bara brekkurnar............
Snjórinn hefur gert það að verkum að ég hef verið í góðu skapi og ég hef hlakkað enn meira til að komast í frí!!!
Ég hef líka eitthvað hlegið að dönskum ökumönnum síðustu vikuna..........MUHAHAHAHAHA þeir kunna ekki að keyra í snjó!!
Auf wiedersehen........ó nei, þetta var þýska.......ok, bye bye
Posted at 16:51 by maggi
Monday, February 28, 2005
Það má kannski nefna að ég sá eina, ef ekki tvær spennandi stöður auglýstar á netinu. Ég kíki sko alltaf öðru hverju á atvinnuauglýsingarnar heima en sé þó sjaldan eitthvað spennandi. Ég skoðaði þetta aðeins og ákvað á sama tíma í gærkvöldi að "update-a" ferilskrá mína ef ske kynni. Svo hugsaði ég nú aðeins málið og áttaði mig á því að þó þetta væru spennandi atvinnutilboð þá langar mig bara ekkert að flytja heim í augnablikinu. Af hverju svo er, hef ég ekki hugmynd um en ég hef það bara nice hérna í baunalandi. Staðan getur auðvitað alltaf breyst og hver veit nema ég sæki um þessar stöður svona að gamni.......en allavega ekki í dag, kannski á morgun.........hver veit......ekki ég.....svo er ég líka í fínni vinnu........meðan það er spennandi og ný verkefni og "udfordringer" eru á boðstólnum er engin ástæða til að fara annað.........
Posted at 19:58 by maggi
|
 |
|
|
 |
|